Fréttir

Home/Fréttir

Sigga Beinteins, Grétar Örvars og jólamarkaður

By |2009-12-14T08:47:28+00:0014. desember 2009 | 08:47|

Síðasta Hamingju-hádegi ársins verður miðvikudaginn 16. desember. Sigga Beinteins og Grétar Örvars syngja inn réttu jólastemninguna og byrja tónleikarnir kl. 12:10. Fyrir og eftir tónleikana er boðið upp á kaffi og jólamarkað. Hamingju-hádegið hefur slegið [...]

Messa í Guðríðarkirkju 3.sunnudag í aðventu.

By |2009-12-09T11:49:22+00:009. desember 2009 | 11:49|

Messa kl 11 þriðja sunnudag í aðventu. Prestur séra Sigurður Árni Eyjólfsson, tónlistarflutningur: Þorvaldur Halldórsson. Sunnudagaskólinn í umsjá Árna Þorláks og Björn Tómas Njálssonar. Jólatréið verður skreytt í sunnudagaskólanum. Kaffispjall eftir messu.

Kirkjuklukknavígsla og aðventuhátíð á sunnudaginn kl. 17.00

By |2009-12-03T15:36:09+00:003. desember 2009 | 15:36|

Sunnudaginn 6. desember kl. 17.00 verður mikil hátíð hér í Guðríðarkirkju. Þá mun hr. Karl Sigurbjörnsson biskup vígja kirkjuklukkurnar sem kalla munu fólk úr Grafarholtinu til kirkju. Síðan verður hið árlega aðventukvöld safnaðarins þar sem [...]

Um kirkjuklukkurnar í Guðríðarkirkju

By |2014-09-05T23:13:32+01:003. desember 2009 | 15:25|

Klukkurnar í Guðríðarkirkju koma frá Þýskalandi og bera nöfn að gömlum sið og á sr. Sigríður Guðmarsdóttir sóknarprestur heiðurinn af nafngiftinni. Nafngiftin vísar í sálminn:"Dýrð í hæstum hæðum" eftir Friðrik Friðriksson: Dýrð í hæstum hæðum, himna [...]

Fjölskyldumessa sun. 6. des. kl. 11.00

By |2009-12-03T15:09:08+00:003. desember 2009 | 15:09|

Næsti sunnudagur er annar sunnudagur í aðventu og þá er fjölskyldumessa hér í kirkjunni kl. 11.00. Við hvetjum alla til að koma; mömmur, pabbar, afar, ömmur, börn og unglingar, já allir geta sameinast í fjölskyldumessunni [...]

Hamingju-hádegi – Voces maskulorum

By |2009-12-01T10:19:27+00:001. desember 2009 | 10:19|

Karlakórinn Voces maskulorum mun halda tónleika í Guðríðarkirkju miðvikudaginn 2. des. kl. 12.10. Karlakórinn samanstendur af úrvali einsöngvara og er kórinn rómaður fyrir frábæran söng. Kaffiveitingar á eftir. Aðgangur ókeypis.

Kristileg íhugun á fimmtudögum

By |2009-11-30T14:31:24+00:0030. nóvember 2009 | 14:31|

Öll fimmtudagskvöld er boðið upp á námskeið í kristinni íhugun í samkvæmt bænahefð sem kallast Centering Prayer. Centering Prayer byggir á aldagamalli hefð sem síðan var endurvakin upp úr 1970 og hefur verið að ná sífellt [...]

Jólavaka í Guðríðarkirkju

By |2009-11-29T11:43:48+00:0029. nóvember 2009 | 11:43|

1.sunnudag í aðventu kl.20.00 barnakór Varmárskóla og Karlakórinn Stefnir úr Mosfellsbæ standa fyrir jólavöku í Guðríðarkirkju.Íboði eru ljúfir jólatónar og ljúffengar kaffiveitingar. Miðaverð kr.1.500. Prestur séra Karl V. Matthíasson mun halda hugvekju.

Go to Top