Fréttir

Home/Fréttir

Kyrrðarbæn og altarisganga í Guðríðarkirkju

By |2017-03-17T21:08:12+00:0024. september 2012 | 22:18|

Kyrrðarbæn og altarisganga í Guðríðarkirkju fimmtudaginn 27. september, kl. 17:30 – 18:30. Sr. Sigríður Guðmarsdóttir útdeilir altarissakramentinu. Byrjendur í kyrrðarbæn mæti kl. 17. Verið hjartanlega velkomin.  

Útvarpsmessan í morgun

By |2017-03-17T21:08:14+00:0023. september 2012 | 13:47|

Í morgun var útvarpsmessa í Guðríðarkirkju að viðstöddu fjölmenni. Guðspjallið var um ekkjuna í Nain. Messuna má hlusta á á vef Ríkisútvarpsins og hægt er að lesa prédikunina á www.tru.is. Hlaðvarp með messunni á vef [...]

Útvarpsmessa í Guðríðarkirkju sunnudaginn 23 sept. kl 11.

By |2017-03-17T21:08:16+00:0020. september 2012 | 11:19|

Útvarpsmessa og barnastarf í Guðríðarkirkju sunnudaginn 23 sept. kl 11. Prestur séra Sigríður Guðmarsdóttir, organisti Hrönn Helgadóttir og kór Guðríðarkirkju syngur. Einsöngvari Margrét Einarsdóttir sópran. Barnastarf í umsjá Guðmundar Brynjólfssonar og Ægis Arnar Sveinssonar. Meðhjálpari [...]

Öll með tölu- 100 tölur í Grafarholti

By |2017-03-17T21:08:23+00:0015. september 2012 | 17:19|

Guðríðarkirkja er með 100 tölur til sölu fyrir Kvennaathvarfið og stefnir á að selja þær allar í næstu viku. Tölur verða seldar í kirkjukaffinu eftir messu 16. og 23. september og á opnunartíma kirkjunnar, þriðjudag til föstudag kl. 10-16. Nú heitum við á Grafhyltinga, Úlfdæli og öll þau önnur sem vilja leggja okkur lið að koma í kirkjuna og kaupa tölu. 100 tölur fyrir Kvennaathvarfið frá Grafarholti!

Fjölskyldumessa í Guðríðarkirkju sunnudaginn 16 sept. kl.11.

By |2017-03-17T21:08:26+00:0012. september 2012 | 15:37|

Fjölskyldumessa í Guðríðarkirkju sunnudaginn 16 sept. kl 11. Guðspjall:  "Hyggið að liljum vallarins." Prestur séra Sigríður Guðmarsdóttir, umsjá ásamt henni Guðmundur Sveinbjörn Brynjólfsson djáknaefni. Organisti Hrönn Helgadóttir. Meðhjálpari Aðalsteinn D. Októsson, kirkjuvörður Lovísa Guðmundsdóttir. Kaffisopi [...]

Bækur fyrir líf

By |2017-03-17T21:08:29+00:007. september 2012 | 14:15|

Undanfarið ár hefur bókamarkaður verið starfræktur í Guðríðarkirkju. Bókunum hefur nú verið komið fyrir í hillum í suðvesturhluta kirkjunnar við prestsskrifstofuna. Þar eru samankomnir um 1300 bækur um aðskiljanlegustu efni, bækur þjóðlegs fróðleiks, skáldsögur, ljóð [...]

Go to Top