Við leggjum af stað í skemmtilega vorferð miðvikudaginn 20. maí!

Við hittumst við Guðríðarkirkju og leggjum af stað kl. 09:00. Fyrsti viðkomustaður er Borgarnes þar sem við teygjum úr okkur og njótum stuttrar hvíldar. Þaðan höldum við áfram að Erpsstöðum og síðar að Laugum í Sælingsdal, þar sem bíður okkar góður hádegisverður.

Eftir notalega stund liggur leiðin að Hjarðarholtskirkju, þar sem við snæðum nesti og njótum kyrrðarinnar. Ef aðstæður leyfa kíkjum við einnig að Eiríksstöðum og ökum fallega leið um Skógarströnd og Heydal.

Á heimleiðinni stoppum við aftur stuttlega í Borgarnesi áður en við höldum heim á leið. Áætluð heimkomu um kl. 19:00.

Kostnaður: 2000 kr.
(athugið að hver og einn greiðir fyrir hádegisverð á Laugum)

Við hlökkum til að eiga með ykkur yndislegan dag 🌼