tjörnustríðsmessa þar sem krafturinn mætir kærleikanum ![]()
Verið hjartanlega velkomin til Stjörnustríðsmessu sunnudaginn 10.maí kl. 11:00 í Guðríðarkirkju þar sem við sameinum skemmtilega Stjörnustríðs stemningu, tónlist og boðskap kirkjunnar.
Búningarsamtökin 501st verður á svæðinu og tekur á móti gestum fyrir messu. En 501st eru alþjóðleg búningasamtök sem koma fram í vönduðum og kvikmyndatengdum búningum úr Stjörnustríðsheiminum. Félagið tekur þátt í ýmiskonar viðburðum, gleðja börn og fullorðna og styðja góðgerðarmál víða um heim.
Komdu, heilsaðu upp á meðlimi 501st, njóttu stemningarinnar og taktu þátt í einstakri messu fyrir alla fjölskylduna. Myndataka eftir messuna.
Verið hjartanlega velkomin og megi krafturinn fylgja ykkur!
