Eldriborgarastarf í Guðríðarkirkju
Miðvikudaginn 8. apríl
Við bjóðum ykkur hjartanlega velkomin í eldriborgarastarf þar sem samvera og góð stund fá að njóta sín.
Kl. 11:00 leiðir Kristín Snorradóttir kyrrðar- og slökunarjóga, sem er tilvalin leið til að byrja daginn á ró og vellíðan.
Kl. 12:00 hefst söngstund og
kl. 12:10 verður helgistund, þar sem við komum saman í kyrrð og íhugun.
Að því loknu verður boðið upp á dýrindismat að hætti Lovísu á 2000 kr. og notalega samveru við borðið.
Þessa stund leiða Sr. Bryndís Valbjarnardóttir, Anna Sigga, Arnhildur og Lovísa.
Við hlökkum til að eiga þessa stund með ykkur.
Hjartanlega velkomin!

