**SEPTEMBER Í GUÐRÍÐARKIRKJU**
Fjölbreytt dagskrá verður í Guðríðarkirkju í september. Verið hjartanlega velkomin!
6. september kl. 11 – Guðsþjónusta
Sr. Leifur Ragnar Jónsson þjónar, Arnhildur Valgarðsdóttir er organisti og Lovísa Guðmundsdóttir kirkjuvörður. Kór Guðríðarkirkju syngur.
Fulltrúar frá Orðinu – félagi um útbreiðslu Guðs orðs koma í heimsókn og afhenda fermingarbörnum Nýja testamentið. Sunnudagaskólinn er á sínum stað kl. 11 í umsjá Huldu Berglindar Tamara.
13. september kl. 11 – Fjölskylduhátíð
Við fögnum haustinu með skemmtilegri hátíð fyrir alla fjölskylduna. Brúðubíllinn verður með sýningu, blaðrari býr til blöðrudýr, hoppukastalar verða á svæðinu og boðið verður upp á pylsur og djús.
20. september kl. 11 – Guðsþjónusta og kveðjumessa Arnhildar
Sr. Leifur Ragnar Jónsson þjónar, Arnhildur Valgarðsdóttir er organisti og Lovísa Guðmundsdóttir kirkjuvörður. Kór Guðríðarkirkju syngur.
Í messunni kveðjum við Arnhildi og þökkum henni fyrir hennar starf í Guðríðarkirkju.
Sunnudagaskólinn er á sínum stað kl. 11 í umsjá Huldu Berglindar Tamara.
27. september kl. 11 – Gul messa
Pálína S. Sigurðardóttir frá Píeta samtökunum flytur hugleiðingu. Sr. María Rut Baldursdóttir þjónar og Lovísa Guðmundsdóttir er kirkjuvörður. Kór Guðríðarkirkju syngur. Hilmar Örn Agnarsson organisti. Sunnudagaskólinn er á sínum stað kl. 11 í umsjá Huldu Berglindar Tamara. Að messu lokinni verður upplýsingafundur fyrir foreldra vegna Vatnaskógar.
Verið hjartanlega velkomin í Guðríðarkirkju í september!
