Sunnudaginn 31.maí kl. 11
bjóðum við ykkur til guðsþjónustu í Guðríðarkirkju.
Þetta verður létt og skemmtileg athöfn þar sem prestar kirkjunnar
sr. Leifur Ragnar og sr. María Rut þjóna. Organistinn okkar Arnhildur Valgarðsdóttir leikur skemmtilega tónlist og Kór Guðríðarkirkju syngur.
Lovísa Guðmundsdóttir er kirkjuvörður.
Eftir guðsþjónustu boðum við til fundar þar sem við kynnum fermingarstarfið og fermingardagana.
Hlökkum til að sjá ykkur öll
