Eldriborgarastarf í Guðríðarkirkju miðvikudaginn 6. maí.

Kl. 11:00 leiðir Kristín Snorradóttir kyrrðar- og slökunarjóga, sem er tilvalin byrjun á deginum fyrir líkama og sál.

Kl. 12:00 hefst söngstund og kl. 12:10 verður kyrrðar- og bænastund.

María og Arnhildur munu syngja og spila fallega tónlist.

Að því loknu verður boðið upp á góðan mat fyrir 2000 kr. og notalega samveru við borðið.

Í lokin verður kynning á vorferðinni sem farin verður miðvikudaginn 20. maí, þar sem farið verður yfir tilhögun og helstu atriði varðandi ferðina.

Við hlökkum til að eiga þessa stund með ykkur.
Verið öll hjartanlega velkomin!

Arnhildur, María og Lovísa