Eldriborgarastarf í Guðríðarkirkju miðvikudaginn 18. mars
Við bjóðum ykkur hjartanlega velkomin í eldriborgarastarfið í kirkjunni.
Kl. 11:00 leiðir Kristín Snorradóttir kyrrðar- og slökunarjóga. Það er tilvalin að byrja daginn á ró og vellíðan. Allir geta tekið þátt á sínum forsendum.
Kl. 12:00 hefst söngstund og kl. 12:10 verður helgistund, þar sem við komum saman í kyrrð og íhugun.
Að því loknu verður boðið upp á dýrindismat að hætti Lovísu á 2000 kr. Við munum eiga notalega samveru við borðið.
Eftir matinn ætlum við að spila bingó.
Bingóspjaldið kostar 200 kr. og veglegir vinningar verða í boði.
Við hlökkum til að eiga dásamlegn dag með ykkur.
Hjartanlega velkomin!
Leifur, María, Lovísa og Arnhildur
