Eldri borgarastarf í Guðríðarkirkju miðvikudaginn 11.mars kl. 12:00

Við bjóðum ykkur hjartanlega velkomin í eldriborgarastarf þar sem samvera og góð stund fá að njóta sín.

Dagskráin hefst á söngstund kl. 12 síðan um kl. 12: 10 er helgistund, þar sem við komum saman í kyrrð og íhugun. Í framhaldinu verður boðið upp á dýrindismat að hætti Lovísu okkar á 2000kr og verður notaleg samvera við borðið.

Að máltíð lokinni mun Kristín Snorradóttir vera með kyrrðar-  og slökunarjóga.

Við hlökkum til að eiga þessa stund með ykkur,
Hjartanlega velkomin!

Leifur, María, Lovísa og Arnhildur