Prjónaguðsþjónusta í Guðríðarkirkju sunnudaginn 8.mars Á alþjóðlegum baráttudegi kvenna
Fólk er hvatt til að taka með sér handavinnuna og prjóna, hekla eða sauma út í öllum messuliðum.
Sr. María Rut Baldursdóttir þjónar fyrir altari og predikar.
Arnhildur Valgarðsdóttir organisti
Kór Guðríðarkirkju syngur.
Lovísa Guðmundsdóttir kirkjuvörður og Guðný Elva Aradóttir meðhjálpari.
Verið hjartanlega velkomin.
Sunnudagaskóli á sama tíma í umsjá Huldu Berglindar og Laufeyjar
