Eldri borgarastarf í Guðríðarkirkju miðvikudaginn 4.mars kl. 12:00

Við bjóðum ykkur hjartanlega velkomin í eldriborgarastarf þar sem samvera og góð stund fá að njóta sín.

Dagskráin hefst á söngstund kl. 12 síðan um kl. 12: 10 er helgistund, þar sem við komum saman í kyrrð og íhugun. Í framhaldinu verður boðið upp á dýrindismat að hætti Lovísu okkar og verður notaleg samvera við borðið.

Að máltíð lokinni mun Ragnar Ingi Aðalsteinsson ljóðskáld, rithöfundur og aðjunkt fjallar um limrur, gamanvísur o.fl.

Við hlökkum til að eiga þessa stund með ykkur í hlýju og góðum félagsskap.
Hjartanlega velkomin!