Eldri borgarastarf í Guðríðarkirkju miðvikudaginn 18. febrúar kl. 12:10

Við bjóðum ykkur hjartanlega velkomin í eldriborgarastarf þar sem samvera og góð stund fá að njóta sín.

Dagskráin hefst á helgistund, þar sem við komum saman í kyrrð og íhugun. Í framhaldinu verður boðið upp á dýrindismat að hætti Lovísu okkawr og verður notaleg samvera við borðið.

Að máltíð lokinni mun Sr. Pétur Þorsteinsson, fyrrverandi prestur Óháða safnaðarins, segja frá Pétrísk–íslenskri orðabók og ýmsu öðru skemmtilegu og fróðlegu sem tengist máli, menningu og minningum. Hér má búast við bæði fróðleik, léttu og skemmtilegu spjalli.

Við hlökkum til að eiga þessa stund með ykkur í hlýju og góðum félagsskap.
Hjartanlega velkomin!