Eldriborgarastarf í Guðríðarkirkju miðvikudaginn 4. febrúar kl. 12:10

Við bjóðum ykkur hjartanlega velkomin í notalegt eldriborgarastarf þar sem við ætlum að eiga góða stund saman.

Dagskráin hefst með helgistund, þar sem við stöldrum við í kyrrð og syngjum sálma. Í framhaldinu verður boðið upp á góðan mat og notalega samveru við borðið.

Að máltíð lokinni flytur Einar Falur Ingólfsson, ljósmyndari, menningarritstjóri, rithöfundur og kennari, áhugavert erindi um listamanninn sem gleymdist – Kristján H. Magnússon. Þar varpað ljósi á líf og verk listamannsins

Við hlökkum til að eiga þessa stund með ykkur – í fræðslu, samveru og góðu samfélagi.

Hjartanlega velkomin!