Kæru vinir,
Við hittumst eins og venjulega í kirkjunni miðvikudaginn 3. desember kl. 12:10, þar sem við eigum saman notalega söng-, bæna- og kyrrðarstund. Það er mikilvægt að staldra við, draga andann djúpt og njóta góðrar stundar í kirkjunni.
Munið að alltaf er hægt að koma með bænarefni.
Að lokinni stund mun bíða okkar dýrindis hádegisverður að hætti Lovísu, verð á matnum er 2000kr.
Eftir það verður síðan spilað skemmtilegt jólabingó með glæsilegum vinningum eins og venjulega! Spjaldið kostar 300kr
Verið öll hjartanlega velkomin – við hlökkum mjög til að sjá ykkur.
Hlýjar kveðjur,Leifur, María Rut og Lovísa
