Við hittumst eins og venjulega inn í kirkju kl. 12:10 og eigum þar söng-, bæna-, og kyrrðarstund.  Ásgeir Páll Ágústsson ópeusöngvari, útvarpsmaður og allt mulig maður kemur og leiðir okkur í söng og sögum.  Við minnum á að ávallt er hægt að koma bænarefnum til okkar.  Svo er dýrindis hádegisverður hjá Lovísu og verður ekki í kot vísað frekar en venjulega.  Kristín Snorradóttir tekur svo þau sem vilja í jógaæfingar.  Alveg stórgóð slökun !

Verið öll hjartanlega og innilega velkomin.

Hlökkum til að sjá ykkur öll.

Leifur, María Rut og Lovísa.