Arnhildur Valgarðsdóttir hefur verið ráðin organisti og kórstjóri við Guðríðarkirkju- Grafarholtsprestakalli frá 1.desember 2023.

Arnhildur er með kirkjuorganistapróf frá Tónskóla Þjóðkirkjunnar ásamt því að vera með BA próf í musical studies frá Glasgow University. Hún er einnig með diplómu í píanóleik frá Royal Scottish academy of music and drama.  Arhildur er með 8. stig í klassískum söng frá Söngskólanum í Reykjavík og er hún við nám í rythmískum söng við LHÍ. Arnhildur hefur stundað tónlistarnám á Masters-stigi við LHÍ, NAIP og einnig stundað nám við Tónskóla Þjóðkirkjunnar til kantorsprófs. Arnhildur stundar nám í rytmískum píanóleik / jazzpíanóleik.

Arnhildur hefur starfað sem organisti og kórstjóri við ýmsar kirkjur í gegnum tíðina og starfað sem píanókennari í fjölda mörg ár. Einnig er Arnhildur undirleikari í nokkrum kórum og er hún mjög fjölhæf þar sem hún hefur spilað  í leikhúsum, á skemmtiferðaskipi, í stúdíóvinnu, í ferðum innanlands og erlendis, með kórum , söngvurum og hljóðfæraleikurum, svo fátt eitt sé nefnt.

Við hlökkum til samstarfsins og bjóðum Arnhildi hjartanlega velkomna til starfa í Guðríðarkirkju.