Sunnudaginn 5.nóvember verður fjölskyldumessa í Guðríðarkirkju.
Sr. Leifur leiðir helgihaldið ásamt Tinnu Rós úr sunnudagaskólanum.
Barnakórar Guðríðarkirkju syngja undir stjórn Öldu Dísar kórstýru.
Arnhildur organisti leikur undir. Chrissie Telma fiðluleikari mun spila á fiðlu nokkur lög. Lovísa er kirkjuvörður.
Eftir stundina ætlum við að pakka inn og taka þátt í að útbúa jól í skókassa. Hvetjum alla til að mæta með eitthvað fallegt og nytsamlegt í kassana.
Kaffi, djús og kruðerí eftir þessa skemmtilegu fjölskyldustund í kirkjunni.
Verið öll hjartanlega velkomin