Sunnudaginn 5.mars 2023 kl. 11 verður nóg um að vera í Guðríðarkirkju. Krílakórar kirkjunnar munu syngja undir stjórn Öldu Dísar. Við munum fá skemmtilegar sögupersónur frá Leikhópnum Lottu í heimsókn.

Prestar kirkjunnar sr. Leifur og sr. María leiða stundina ásamt Arnhildi organista og Tinnu Rós í sunnudagaskólanum.

Verið hjartanlega velkomin í kirkjuna.