Sunnudaginn 19.febrúar verður konudags guðsþjónusta. Sungnir verða sálmar eftir konur og allar konur fá rós í tilefni dagsins.

Boðið verður upp á óáfengar búbblur og bollur eftir athöfn.

Sr. Leifur Ragnar Jónsson þjónar fyrir altari og predikar. Organisti er Arnhildur Valgarðsdóttir og kór Guðríðarkirkju leiðir söng.

Lovísa Guðmundsdóttir kirkjuvörður og

Guðný Elva Aradóttir meðhjálpari.

Verið hjartanlega velkomin

Börn í Sæmundarskóla og foreldrar þeirra eiga að koma að máta kirtla ásamt öllum þeim sem eiga það eftir.