Eldri borgara starfið hefur göngu sína á nýju ári nk. miðvikudag 18. janúar kl. 12:10.  Sigrún Helgadóttir rithöfundur heimsækir okkur og segir okkur frá bók sinni um íslenska faldbúningnum og sögu íslenskra kvenklæða. Um bók hennar segir í kynningu :

Faldar og skart – Faldbúningurinn og aðrir íslenskir þjóðbúningar segir – í máli og fjölmörgum myndum – sögu íslenskra kvenklæða og þjóðbúninga fram á 20. öld með aðaláherslu á faldbúninginn sem var notaður fram á 19. öld. Honum er lýst í heild og einstökum hlutum hans og fjölmörgum fylgihlutum. Efni, margskonar saumaskap og mynstrum ásamt silfrinu eru gerð greinargóð skil. Inn í lýsinguna er fléttuð frásögn af einstaklega merkilegum faldbúningi sem grasafræðingurinn William Hooker hafði með sér til Englands árið 1809 þar sem Jörundur hundadagkonungur er í lykilhlutverki. Sá búningur er varðveittur á Victoríu og Albertssafninu í Lundúnum“

Þetta hefst eins og venjulega með helgistund í kirkjunni og hádegisverði þar á eftir !

Hægt er að koma fyrirbænum til prestanna.

Hlökkum til að sjá ykkur !

Leifur,Hulda Birna og Helgi.