Kæru vinir,

Það er með mikilli gleði sem við tilkynnum ykkur að næsta sunnudag fer helgihaldið aftur af stað í Guðríðarkirkju. Þá verður fjölskylduguðsþjónusta sem að sr. Pétur Ragnhildarson og Ásta Guðrún Guðmundsdóttir hafa umsjón með. Þar ætlum við að syngja mikið saman, heyra sögu úr Biblíunni og svo mætir brúðan Viktoría í heimsókn og fer á kostum.

Í næstu viku fer einnig allt safnaðarstarfið af stað líkt og opið hús fyrir eldri borgara á miðvikudögum og allt barna- og æskulýðsstarfið.

Hlökkum til að sjá ykkur aftur í kirkjunni.

Með kveðju, prestar og starfsfólk Guðríðarkirkju.