Kæru sóknarbörn

 

Vegna almennra sóttvarnarráðstafana,  og kórónuveirusmita í fjölskyldum starfsfólks,  er öllu helgihaldi í Guðríðarkirkju um hátíðarnar aflýst.  Sendar verða út rafrænar helgistundir á Aðfangadagskvöld, jóladag og barnastund annann í jólum.  Einnig verður send út kveðja á gamlársdag.  Kirkjan verður opin milli kl. 14 – 16 aðfangadag, jóladag og gamlársdag fyrir þau sem vilja koma, gera bæn sína, kveikja á kerti og eiga hljóða stund.  Sóknarprestur verður í kirkjunni og getur verið fólki innanhandar ef það vill.  Kirkjan verður svo opin milli jóla og nýárs á venjulegum tímum og ávallt er hægt að ná í sóknaprest.

Guð gefi okkur öllum gleðileg jól og farsæld á komandi tímum.  Verið öll Guði fali.

 

Með bestu kveðjum.

Guðríðarkirkja.