Kveðjumessa

Sunnudaginn 29. ágúst nk. verður messa í Guðríðarkirkju kl. 11:00.  Í messunni kveður söfnuðurinn Sr. Karl V. Matthíasson sóknarprest en hann lætur formlega af störfum sem sóknarprestur þann 1. sept. nk. Sr. Karl hefur tengst starfi Guðríðarkirkju síðan 2009 en verið prestur,  og síðar sóknarprestur,  safnaðarins síðan 2014.  Í messunni þjóna prestar safnaðarins fyrir altari, þeir Sr. Leifur Ragnar Jónsson settur sóknarprestur og Sr. Pétur Ragnhildarson prestur og æskulýðsfulltrúi, en Sr. Karl prédikar.  Kór Guðríðarkirkju undir stjórn Hrannar Helgadóttur organista syngur við messuna en auk þess syngur Ásbjörg Jónsdóttir barnakórsstjóri einsöng.  Kirkjuvörður er Lovísa Guðmundsdóttir.  Eftir messuna verður boðið upp á veitingar.  Verið öll hjartanlega velkomin.