Á dögunum sendum við öllum börnum á fermingaraldri í prestakallinu bréf þar sem við kynntum fermingarsfræðslu næsta vetrar. Opnað hefur verið fyrir skráningar í fræðsluna og einnig er hægt að velja sér fermingardag. Við vekjum athygli á því að öllum börnum á fermingaraldri stendur til boða að sækja fræðsluna óháð trúfélagsaðild. Skráning fer fram á heimasíðu Guðríðarkirkju. Við höfum fræðsluna lifandi og skemmtilega og verður boðið upp á fjölmarga viðburði tengdum fræðslunni yfir veturinn. Við hlökkum sannarlega til spennandi samverustunda næsta vetur. Kynningarfundir verða fyrir Dalskóla 30. ágúst, Ingunnarskóla 31. ágúst og Sæmundarskóla 1. september. Allir fundirnir verða kl. 20:00.

Hlökkum til að sjá ykkur !

Prestar og starfsfólk Guðríðarkirkju.