Um þessar mundir eru erfiðir tímar hjá mörgum. Guðríðarkirkja hefur lagt ýmsu efnaminna fólki lið með Bónuskortum og hefur notið aðstoða fólks og fyrirtækja í því ásamt því að leggja fram úr eigin sjóði. Þörfin er meiri núna en undanfarin ár og því leitum við til ykkar sem gætuð látið eitthvað af hendi rakna. Koma má Bónuskortum til presta kirkjunnar eða leggja inn á reikning líknarsjóðs kirkjunnar sem er 0114 – 26 – 3050, 660104 – 3050.

Guð blessi ykkur öll.