Í gær mætti glæsilegur hópur á sína fyrstu barnakóræfingu. Við hlökkum til að leyfa ykkur að heyra í þessum fallegu englaröddum. Enn er hægt að skrá sig á heimasíðu kirkjunnar, undir Barnakór Guðríðarkirkju. ATHUGIÐ breyttan æfingatíma hjá yngri hóp. Æfingar fara fram á miðvikudögum eins og hér segir: Eldri hópur (7 ára og eldri): 15:15-16:00 og yngri hópur (5 og 6 ára): 16:45-17:15. Ekkert þátttökugjald er í kórinn í ár! Allir velkomnir!