Mannrækt í Guðríðarkikju

12 Sporinn Vinir í bata Andlegt Ferðalag
Viltu bæta þig í mannlegum samskiptum, hafa betri stjórn á aðstæðum,
vera sáttari með þig sem einstakling, njóta betri árangurs í lífinu,
Þá gæti 12 sporin vinir í bata verið eitthvað fyrir þig

Vinir í bata, munu leiða starfið af stað og hefst það miðvikudaginn 3 október 10 október og svo lokar hópurinn 17 október

Vinir í bata er hópur fólks sem hefur farið sjálft í gegnum prógrammið
og tileinka sér Tólf sporin sem lífstíl og hefur það að markmiði að gefa öðrum kost á því að kynnast þessu prógrammi,
vegna þess að þetta starf hefur gefið mörgum mjög mikið og orðið fólki til blessunar.
Tólf spora vinna hentar öllum þeim sem í einlægni vilja vinna með tilfinningar sínar
í þeim tilgangi að öðlast betri líðan og meiri lífsfyllingu þar sem leitað er styrks í kristinni trú.

Boðið er upp á tvo opna kynningarfundi þar sem fólk hefur tækifæri til að sjá út á hvað prógrammið gengur,
á þriðja fundi er hópnum lokað og unnið er út frá vinnubókinni 12.sporin -Andlegt ferðalag.
Unnið er í litlum lokuðum hópum, vinnan gengur út á að deila eigin reynslu styrk og von,
mæta á vikulega fundi sem eru haldnir á miðvikudagskvöldum kl.19:00-21:00 í safnaðarheimili Guðríðarkirkju í vetur.
Kirkjan býður þátttakendum upp á þetta þeim að kostnaðarlausu, utan þess að þeir þurfa að kaupa vinnubókina
12. Sporin –Andlegt ferðalag sem er til sölu í flestum bókabúðum og Kirkjuhúsinu.

Vinir í bata (VIB) eru með heimasíðu, viniribata.is, þar er hægt að nálgast frekari upplýsingar um 12.sporin –Andlegt ferðalag.

 

kær kveðja Ásthildur.