Kæru vinir, félagsstarfið hefst að venju með helgistund kl. 13:10. Samsöngur við undirleik Hrannar Helgadóttur organista. Framhaldssagan „Dalalíf“ verður lesin. Síðan verður boðið upp á tónlistarveislu. Tekið verður á móti sól og sumri með Ásbjörgu Jónsdóttur barnakórstjóra og Hrönn Helgadóttur organista þar sem þær flytja okkur nokkur frumsamin lög í bland. Kaffi og meðlæti að hætti Lovísu kirkjuvarðar á kr. 500,-. Umsjónarmaður er Sigurbjörg Þorgrímsdóttir.