Kæru vinir, félagsstarfið hefst að venju með helgistund. Samsöngur við undirleik Hrannar Helgadóttur organista og síðan verður framhaldssagan „Dalalíf“ lesin. Erindið að þessu sinni verður flutt af sr. Karli V. Matthíassyni og fjallar það um sorg og sorgarviðbrögð. Kaffi og meðlæti að hætti Lovísu kirkjuvarðar undir lok samverunnar á kr. 500,-. Umsjónarmaður er Sigurbjörg Þorgrímsdóttir. Nánari upplýsingar hjá umsjónarmanni á netfanginu: felagsstarf@grafarholt.is. Hlökkum til að sjá ykkur.
Sorg