Vængjamessa sem er samstarfsverkefni Árbæjar- Grafarholts- og Grafarvogssafnaða verður í Guðríðarkirkju 28.des. kl 20.00
Messað til gleði og vímuleysis rétt fyrir áramót. Tveir deila með okkur reynslu sinni annar óvirkur alkóhólisti og hinn aðstandandi. Sylvía Rún Guðnýjardóttir syngur, Ástavaldur Traustason á flygilinn og Áslaug Rún Magnúsdóttir á klarinett. Upplifum þakklæti, gleði og von í vængjamessu í Guðríðarkirkju þann 28. Des. Kl 20.00. Kaffi og sjall eftir messu. Þessu má svo deila kæru vinir.