Kæru vinir, félagsstarfið hefst að venju með helgistund kl. 13:10. Að henni lokinni verður spilað bingó. Spilaðar verða sex umferðir og kostar spjaldið kr. 200,-. Fallegir og góðir vinningar í boði sem velunnarar kirkjunnar hafa gefið. Kaffi og meðlæti að hætti Lovísu kirkjuvarðar undir lok samverunnar á kr. 500,-. Umsjónarmaður er Sigurbjörg Þorgrímsdóttir. Nánari upplýsingar á netfanginu: felagsstarf@grafarholt.is. Hlökkum til að sjá ykkur.
bingó