Félagsstarf fullorðinna 18+ er á morgun miðvikudaginn 5. febrúar. Starfið byrjar á helgistund kl. 13:10. Lesið verður úr Íslandsklukkunni að venju, sunginn fjöldasöngur undir stjórn Margrétar Sigurðardóttur kórstjóra og góður gestur Ingunn Mai Friðleifsdóttir tannlæknir heldur fróðlegt erindi. Lovísa kirkjuvörður verður með sitt góða kaffi og meðlæti á kr. 500,-. Umsjónarmaður er Sigurbjörg Þorgrímsdóttir. Hlökkum til að sjá ykkur.
febrúarblóm