Enn á ný verður farið af stað með leshópinn í Guðríðarkirkju tengdur Kyrrðarbæninni (Centering prayer). Eins og flestum er kunnugt er búið að þýða yfir á íslensku, bókina „Open Mind, Open Heart“ eftir Thomas Keating. Íslenska heiti bókarinnar er „Vakandi hugur, vökult hjarta“. Af því tilefni verður endurnýjuð kynni á bókinni. Þetta er skemmtilegt og spennandi ferðalag um heim Kyrrðarbænarinnar. Öllum er gefinn kostur á að vera með í þessu ferðalagi, fyrir byrjendur í iðkun bænarinnar sem og lengra komnum. Thomas Keating lætur engan ósnortinn með glettni sinni og orðsnilld. Hann nær alla leið að hjartarótum lesandans, heimur sem í senn er skemmtilegur og spennandi.
Bókin fæst á kynningarverði á staðnum á kr. 2.000,- á meðan birgðir endast. Hún fæst einnig í Kirkjuhúsinu og í Eymundsson. Tek fram, að ekki er gerð krafa um að viðkomandi eigi eða kaupi bókina, þátttakan ein nægir.
Dagskrá:
17:30-18:30 Kyrrðarbæn í 2×20 mín. með gönguíhugun á milli. Byrjað stundvíslega kl. 17:35.
18:30-19:00 Léttur kvöldverður (kr. 500,-)
19:00-21:00 Leshópur
Nánari upplýsingar veitir Sigurbjörg í síma 861-0361 eða á netf. coiceland@gmail.com
ihugun