Nú á fimmtudaginn hefst Tólf spora starf í Guðríðarkirkju. Starfið verður á fimmtudagskvöldum frá 19-20:30 og ábyrgðarmaður þess er Ásthildur Sigurðardóttir. Netfang hennar er asthildursig@hotmail.com ef fólk vill fá meiri upplýsingar um tólf spora starfið í Guðríðarkirkju. 12 spora starfið rímar einkar vel við Kyrrðarstundina sem haldin er hvern fimmtudag klukkan 17:30 í kirkjunni og líta má á sem ellefta sporið.

„Sporin 12. -Andlegt ferðalag“ er leiðsögn fyrir fólk sem mætt hefur einhverju misjöfnu á lífsleiðinni og vill bæta líðan sína eða sættast við fortíðina. Í 12. spora ferðinni vinnur fólk með tilfinningar sínar og hugsanir í lokuðum hópum þar sem trúnaður ríkir. Markmiðið er að græða innri sár, leiðrétta meðvirkni og nálgast sinn æðri mátt.
Þessi vinna hefur aukið vellíðan margra og lífsgæði, veitt fólki lækningu, bata og andlega vakningu.

Unnið er út frá bókinni 12. sporin -andlegt ferðalag og er ekki sérstaklega fyrir alkóhólista eða aðstandendur þeirra. ALLIR eru velkomnir. Þátttaka er ókeypis og samverurnar eru opnar fyrstu fjórar vikurnar en á þeim tíma er hægt að kynna sér ferðalagið án allra skuldbindinga.

Nánari upplýsingar um 12. spora ferðalagið er að finna á heimasíðu Vina í bata, www.viniribata.is.