Miðvikudaginn 27. mars verður páskabingó í félagsstarfi fullorðinna. Glæsilegir vinningar í boði. Haldið verður áfram með Njálulestur, Hrönn leiðir okkur í hressilegum fjöldasöng og Lovísa verður með gómsætt páskakaffi fyrir 500 krónur. Umsjónarmenn séra Sigríður og séra Bryndís Valbjarnardóttir.