Kristniboðsdagurinn 14. nóvember
Fjölskyldumessa kl. 11. Barnakórinn syngur undir stjórn Berglindar Björgúlfsdóttur. Sálmar frá ýmsum löndum verða sungnir og frábært væri ef fólk vildi mæta í litríkum fötum í tilefni dagsins. Prestur séra Sigríður Guðmarsdóttir, organisti Hrönn Helgadóttir, meðhjálparar Aðalsteinn Dalmann Októsson og Sigurður Óskarsson, kirkjuvörður Davíð Ólafsson. Kirkjukaffi eftir messu.