Krílasálmar í Guðríðarkirkju
Tónlistarnámskeið fyrir foreldra og ungabörn 0-1 árs

Námskeiðið er skemmtileg upplifun þar sem söngur, tónlist, dans og hljóðfærasláttur er notað til að auka tengsl við ungabörn og örva þannig þroska þeirra. Rannsóknir hafa sýnt að tónlist hefur góð áhrif á tilfinninga- og hreyfiþroska barna.

Í kennslunni eru einkum notaðir sálmar og tónlist kirkjunnar en einnig þekktar vísur, hrynleikir og þulur.

Námskeiðið fer fram í Guðríðarkirkju, á mánudagsmorgnum 1.nóvember til og með 6.desember. Hver stund hefst klukkan 10:10 og stendur í um 50 mínútur. Námskeiðsgjald er krónur 4000 fyrir sex skipti. Umsjón hefur Berglind Björgúlfsdóttir söngkona og barnakórstjóri.

Skráning í síma 577 7770 eða með því að senda tölvupóst á barnakor@gmail.com. www.grafarholt.is