Barnakór kirkjunnar tekur aftur til starfa miðvikudaginn 9. september 2009. Kórinn er opinn öllum börnum í 2.-4. bekk og verða æfingar á haustmisseri á miðvikudögum í tónmenntastofum skólanna, sem hér segir:

  • Sæmundarskóla kl. 14:00 – 15:00
  • Guðríðarkirkju kl. 15:30 – 16:30

Kórstjóri er Berglind Björgúlfsdóttir. Beinið fyrirspurnum til Berglindar á barnakor@gmail.com eða hringið í Berglindi í síma 660-7661.

Nauðsynlegt er að skrá börnin í kórinn. Það er gert með því að fylla út skráningareyðublaðið og skila því á næstu kóræfingu eða senda upplýsingarnar með rafpósti á: barnakor@gmail.com. Ekkert gjald er tekið fyrir kórstarfið.