Guðríðarkirkja í Grafarholti verður vígð við hátíðlega athöfn af biskupi Íslands annan sunnudag í aðventu, 7. desember, kl. 14.

Guðríðarkirkja við Kirkjustétt í Grafarholti verður vígð við hátíðlega athöfn af biskupi Íslands annan sunnudag í aðventu, 7. desember, kl. 14.

Kirkjukór og barnakór Grafarholtssóknar munu syngja við athöfnina undir stjórn Hrannar Helgadóttur og Berglindar Björgúlfsdóttur. Organisti er Hrönn Helgadóttir. Hljómskálakvintettinn, Agnes Amalía Kristjónsdóttir sópransöngkona og Kristjana Helgadóttir þverflautuleikari taka þátt í tónlistarflutningi.

Við vígsluna verða frumfluttir tveir vígslusálmar sem kirkjunni hafa borist að gjöf, annar er ortur af safnaðarfulltrúa sóknarinnar, Sigurjóni Ara Sigurjónssyni, og hinn af sóknarpresti. Jón Ásgeirsson tónskáld gerði lagið við fyrrnefnda sálminn og gaf Guðríðarkirkju í vígslugjöf.

Athöfnin hefst með því að biskupar, prestar og djáknar Reykjavíkurprófastsdæmis eystra, sóknarnefnd, byggingarnefnd, starfsmenn kirkjunnar og kórar hennar ganga til kirkju með helga gripi hennar. Eftir vígsluna verður kirkjugestum öllum boðið í veglegt hátíðarkaffi í Gullhömrum.

Á Flickr-myndasíðu kirkjunnar má sjá kirkjuna á ýmsum stigum byggingarinnar.

Grafarholtsbúar eru hvattir til að fjölmenna við vígslu Guðríðarkirkju! Kirkjugestum er bent á að leggja bílum sínum á bílastæðin við Ingunnarskóla og leikskólann Maríuborg þegar bílastæðið við kirkjuna verður fullt.