Barnakór kirkjunnar tekur aftur til starfa 10. september 2008. Smellið á „Áfram“ til að sjá upplýsingar um æfingatíma og skráningu barnanna.

Barnakór kirkjunnar tekur aftur til starfa miðvikudaginn 10. september 2008. Kórinn er opinn öllum börnum í 2.-6. bekk og verða æfingar á haustmisseri á miðvikudögum í tónmenntastofum skólanna, sem hér segir:

Í Sæmundarskóla kl. 14:30 – 15:30,

í Ingunnarskóla kl. 16:00 – 17:00.

Kórstjóri er Berglind Björgúlfsdóttir. Beinið fyrirspurnum til Berglindar á barnakor@grafarholt.is

eða hringið í Berglindi í síma 660-7661.

Nauðsynlegt er að skrá börnin í kórinn.

Það er gert með því að fylla út þetta eyðublað (Word-skjal sem má hlaða niður) og skila útprentuðu á næstu kóræfingu eða senda upplýsingarnar með rafpósti á: barnakor@grafarholt.is.