Vakin er athygli á því, að trappistamunkurinn William Meninger frá Colorado kemur til Íslands nú í apríl og heldur m.a. kyrrðardag og fyrirlestur um hugleiðslu- og íhugunaraðferð, sem hann hefur þróað.

Vakin er athygli á því, að trappistamunkurinn William Meninger frá Colorado kemur til Íslands í apríl og heldur m.a. kyrrðardag og fyrirlestur um hugleiðslu- og íhugunaraðferð, sem hann hefur þróað. Sigurbjörg Þorgrímsdóttir úr sóknarnefndinni okkar er meðal þeirra, sem undirbúa komu hans til landsins.

Meninger kemur frá klaustri heilags Benedikts í Snowmass, Colorado. Hugleiðslu- og íhugunaraðferð hans nefnist á ensku Centering Prayer. Hún byggir á einbeittri bæn og íhugun í þögn og hefur að einkunnarorðum vers úr 46. sálmi Davíðs: ,,Verið kyrrir og viðurkennið, að ég er Guð.“ William Meninger flytur kynningarfyrirlestur á Torgi Háskóla Íslands, HT 103, kl. 12.00 fimmtudaginn 17. apríl. Laugardaginn 19. apríl leiðir hann kyrrðardag í Neskirkju frá kl. 10-16. Allir eru velkomnir meðan húsrúm leyfir, sjá nánar www.neskirkja.is.

Faðir Villiam, eins og hann er nefndur, kynntist ungu fólki í upphafi áttunda áratugarins sem leitaði að andlegri leiðsögn í búddískri íhugunaraðferð á kyrrðarsetri í nágrenni klausturs síns og honum og ábótanum Thomasi Keating varð það hugleikið að kanna hvað hindraði þetta unga fólk í að tileinka sér kristna arfleið sem það hafði vaxið upp í. Faðir William tók sig til og aðlagaði klassíska kristna miðaldahefð að þörfum nútímafólks. Ráðleggingar hans byggja á bókinni:“The Cloud of Unknowing“ sem skrifuð var á 14.öld af óþekktum enskum munki. Þar er að finna hornsteininn í aðferðinni Centering Prayer. Í þessu skjali má lesa um aðferðina í þýðingu sr. Ragnheiðar Jónsdóttur, prests í Mosfellsbæ. Thomas Keating kom til Íslands fyrir nokkrum árum og kynnti þessa íhugunarleið í Skálholtsskóla, en hún hefur náð til fjölda fólks víða um heim. Samtök sjálfboðaliða, Contemplative Outreach, halda úti heimasíðu á netinu, sem þróuð er í samvinnu við Thomas Keating til stuðnings iðkendum íhugunarinnar. Þangað er hægt að sækja fjölbreytt efni, leiðbeiningar, tilvísanir í greinar og bækur og tilboð um kennslu og kyrrðardaga: www.contemplativeoutreach.com

Nokkrir Íslendingar hafa kynnt sér þessa íhugun og iðka hana í trúar- og bænalífi sínu. Dagskrá Williams Meningers á Íslandi að þessu sinni hefur verið skipulögð af bænahópi sem heimsótti klaustrið í Snowmass og tók þátt í kyrrðardögum undir handleiðslu hans og Thomasar Keating. Pétur Pétursson prófessor hefur verið hópnum til aðstoðar. Meðal þeirra sem taka þátt í bænahópnum, fóru til Snowmass og eru í tengslum við munkinn, er Sigurbjörg Þorgrímsdóttir sóknarnefndarkona í Grafarholti og bókari safnaðarins, en hún hefur m.a. sinnt barnastarfi kirkjunnar.

William Meninger gekk menntaveginn í Boston í Masachusetts og vígðist að loknu guðfræðinámi árið 1958 og var settur prestur í Yakima í Washingtonfylki, þar sem hann vann á verndunarsvæði indíána og með mexíkönskum farandverkamönnum í 6 ár. Hann hefur einnig lokið framhaldsnámi í guðfræði við Harward, Boston og Seattle University. Árið 1963 gekk hann í klaustur trapistareglunnar, St.Jospeph í Spencer, Massachusetts. Þar bjó hann og starfaði við kennslu og leiðsögn nýliða uns hann fluttist til Benediktínaklaustursins í Snowmass í Colorado. Þar hefur hann einnig einbeitt sér að kennslu og andlegri leiðsögn nýliða innan reglunnar, sem og annarra leikmanna sem koma víða að til að dvelja á kyrrðarsetri klaustursins.

William yfirgefur kaustrið aðeins fjórum sinnum á ári til ferðast um heiminn til að deila reynslu sinni af andlegri iðkan, kenna „centering prayer“ og veita andlega leiðsögn. William er höfundur fjölda bóka. Einnig hafa komið út hljóðdiskar með erindum hans á kyrrðardögum o.fl. Sjá nánar heimasíðu hans www.contemplativeprayer.net