Næsta sunnudag, 2. mars, sem er fjórði sunnudagur í föstu, messar dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson í Þórðarsveigi 3 kl. 11 og barnastarfið er á sínum stað í Ingunnarskóla.

Næsta sunnudag, 2. mars, sem er fjórði sunnudagur í föstu, verður helgihaldið sem hér segir í Grafarholti:

Messa í Þórðarsveigi 3 kl. 11. Sr. Sigurjón Árni Eyjólfsson, héraðsprestur, prédikar og þjónar fyrir altari. Kirkjukór Grafarholtssóknar leiðir sönginn, organisti og söngstjóri er Hrönn Helgadóttir. Meðhjálpari er Aðalsteinn D. Októsson og kirkjuvörður er Sigurður Óskarsson. Kirkjukaffi eftir guðsþjónustuna. Allir velkomnir.

Sunnudagaskóli í Ingunnarskóla kl. 11. Anna Elísa Gunnarsdóttir og Þorgeir Arason leiða stundina. Söngur, sögur, brúður og bænir. Nýr límmiði og ný mynd að lita. Allir velkomnir.