Barnakór Guðríðarkirkju æfir á þriðjudögum og miðvikudögum yfir vetrarmánuðina.

Æfingar eru sem hér segir:

Á þriðjudögum

       Sæmundarskóli kl. 14:00 – 14:45 1.-4. bekkur (Sæmundarskólabörn og Dalskólabörn)

       Guðríðarkirkja kl. 15:00 – 15:45 1.-4. bekkur (Ingunnarskólabörn)

Á miðvikudögum

       Guðríðarkirkja (eldri hópur) kl. 16:00 – 17:00 5.-.10. bekkur (Allir skólar)

Í Barnakór Guðríðarkirkju er sungin tónlist af ýmsum toga, veraldleg og trúarleg. Markmiðið með starfinu er að efla söng barnanna, tónlistarþekkingu, nótnalestur og raddbeitingu. Barnakórinn kemur fram í fjölskyldumessu einu sinni í mánuði. Kórstýrur eru Ásbjörg Jónsdóttir og Svanfríður Hlín Gunnarsdóttir.

Allir eru velkomnir í kórinn án tillits til trúfélagsaðildar.

Skráningin fer fram rafrænt með því að smella hér.