Síðasti kynningarfundur í kvöld kl: 19:30 í Guðríðarkirkju.

Vera sáttari með þig sem einstakling, njóta betri árangurs í lífinu,

Þá gæti 12 sporin vinir í bata verið eitthvað fyrir þig

 

Vinir í bata, munu leiða starfið af stað og hefst það miðvikudaginn 20. september.

Síðan veða tveir opnir fundir 27 sept. og 4 okt

Vinir í bata er hópur fólks sem hefur farið sjálft í gegnum prógrammið

og tileinka sér Tólf sporin sem lífstíl og hefur það að markmiði að gefa öðrum kost á því að kynnast þessu prógrammi,

vegna þess að þetta starf hefur gefið mörgum mjög mikið og orðið fólki til blessunar.

Tólf spora vinna hentar öllum þeim sem í einlægni vilja vinna með tilfinningar sínar

í þeim tilgangi að öðlast betri líðan og meiri lífsfyllingu þar sem leitað er styrks í kristinni trú.

 

Boðið er upp á þrjá opna kynningarfundi þar sem fólk hefur tækifæri til að sjá út á hvað prógrammið gengur,

á fjórða fundi er hópnum lokað og unnið er út frá vinnubókinni 12.sporin -Andlegt ferðalag.

Unnið er í litlum lokuðum hópum, vinnan gengur út á að deila eigin reynslu styrk og von,

mæta á vikulega fundi sem eru haldnir á miðvikudagskvöldum kl.19:00-21:00 í safnaðarheimili Guðríðarkirkju í vetur.

Kirkjan býður þátttakendum upp á þetta þeim að kostnaðarlausu, utan þess að þeir þurfa að kaupa vinnubókina

12. Sporin –Andlegt ferðalag  sem er til sölu í flestum bókabúðum og Kirkjuhúsinu.

 

Vinir í bata (VIB) eru með heimasíðu, viniribata.is, þar er hægt að nálgast frekari upplýsingar um 12.sporin –Andlegt ferðalag.