Barnakór Guðríðarkirkju mun hefja starfsemi þann 5. september næstkomandi.

Æfingar eru á þriðjudögum á eftirfarandi tímum:

Sæmundarskóli 14:15-15:00 (1.-4. bekkur Sæmundarskólabörn og Dalskólabörn)

Guðríðarkirkja 15:15-16:00 (1.-4. bekkur Ingunnarskólabörn)

Í Barnakór Guðríðarkirkju er sungin tónlist af ýmsum toga, veraldleg og trúarleg. Markmiðið með starfinu er að efla söng barnanna, tónlistarþekkingu, nótnalestur og raddbeitingu. Barnakórinn kemur fram í fjölskyldumessu einu sinni í mánuði. Kórstjóri er Svanfríður Hlín Gunnarsdóttir.

Allir eru velkomnir í kórinn án tillits til trúfélagsaðildar og er án þátttökugjalds.

Skráningin fer fram rafrænt með því að smella á þennan link.