Barnakór Guðríðarkirkju tekur til starfa á ný eftir sumarfrí og verða æfingarnar á þriðjudögum (fyrstu kóræfingarnar verða þriðjudaginn 8. september).

 

Í vetur ætlum við einnig að bjóða 1. bekk að taka þátt í kórastarfinu.

 

Sunnudaginn 6. september verður fjölskyldumessu kl. 11 og eru allir hvattir til að mæta í hana en kórstjórinn sér um tónlistina í messunni og að henni lokinni er velkomið að spyrja spurninga varðandi kórinn ef eitthvað er óljóst.

 

Æfingar verða sem hér segir:  

 

Guðríðarkirkja kl. 13.45 – 14.15:   1. bekkur (allir skólar saman)

Guðríðarkirkja kl. 14.30 – 15.15:   2.-5. bekkur (Ingunnarskólabörn)

Sæmundarskóli kl 15.30 – 16.15:   2.-5. bekkur (Sæmundarskólabörn og Dalskólabörn)

 

 

Í Barnakór Guðríðarkirkju er sungin tónlist af ýmsum toga, veraldleg og trúarleg. Markmiðið með starfinu er að efla söng barnanna, tónlistarþekkingu, nótnalestur og raddbeitingu. Eldri barnakór kemur fram í fjölskyldumessu einu sinni í mánuði en yngri kór kemur fram í barnastarfi kirkjunnar einu sinni í mánuði. Kórstjóri er Ásbjörg Jónsdóttir. Aldís Rut Gísladóttir sér um barnastarfið og kemur að æfingum yngri kórs.

 

Allir eru velkomnir í kórinn án tillits til trúfélagsaðildar.