sumar

Hlökkum til að sjá ykkur í sumarskapi.

Hið árlega Sumarhlaup FRAM verður að þessu sinni ræst í Úlfarsárdalnum.  Skráning hefst kl. 09:30 í FRAMheimilinu en hlaupið verður ræst kl. 10:00.  Tvær vegalengdir verða í boði; 3km og 5km.  Keppt verður í þremur aldursflokkum; börn, unglingar og fullorðnir.  Veitt verða verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í hverjum flokki auk þess sem öll börn fá verðlaunapening.  Drykkir í boði að hlaupi loknu.