Námskeið verður haldið í aðferð Kyrrðarbænarinnar (Centering Prayer) í Guðríðarkirkju í Grafarholti

fimmtudagana 4. og 11. október kl. 19:30 – 21:30.

Þátttökugjald á námskeiðið fyrir bæði kvöldin er kr. 2.000,-

 

Í framhaldi verður boðið upp á sex fræðslukvöld þar sem farið verður dýpra í einstaka þætti sem kenndir voru á námskeiðinu. Kvöldin einkennast af iðkun bænarinnar, fræðslu og umræðum.

Fræðslukvöldin hefjast fimmtudaginn 18. október kl. 19:30 – 21:00 og þeim lýkur fimmtudaginn 22. nóvember á sama tíma, alls sex fimmtudagar.

 

Þau ykkar sem áður hafa sótt námskeið í Kyrrðarbænininni og/eða iðkað eruð hjartanlega velkomin á fræðslukvöldin sex.

 

Umsjón er í höndum Aðalheiðar Rúnarsdóttur, guðfræðinema, sr. Báru Friðriksdóttur og Sigurbjargar Þorgrímsdóttur, djáknakandidats.

 

Upplýsingar og skráning hjá Sigurbjörgu í síma 861-0361 eða á netfangi:

sigurth@simnet.is