Kæru foreldrar/forráðamenn og börn í 2. – 6. bekk í Grafarholti!

Barnakór kirkjunnar tekur aftur til starfa miðvikudaginn 8.september 2010. Kórinn er opinn öllum börnum í 2.-6. bekk og verða æfingar á haustmisseri í Guðríðarkirkju á miðvikudögum, sem hér segir:
4.- 6.bekkur kl. 14:10 – 15:10,
2. og 3.bekkur kl. 15:15 – 16:15.
Kórstjóri er Berglind Björgúlfsdóttir. Beinið fyrirspurnum til Berglindar á barnakor@gmail.com eða hringið í Berglindi í síma 660-7661.

Nauðsynlegt er að skrá börnin í kórinn. Það er gert með því að fylla út eyðublað og skila því á næstu kóræfingu eða senda upplýsingarnar með rafpósti á: barnakor@gmail.com. Ekkert gjald er tekið fyrir kórstarfið.
Kær kveðja,
Berglind Björgúlfsdóttir
Barnakórstjóri Guðríðarkirkju